Taktu prófið og þú getur komist í lukkupottinn!

Svaraðu spurningunum hér að neðan og ef þú getur svarað 80% rétt áttu þess kost að skrá nafn þitt í lukkupottinn!

1. Lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð skv. lögum er:
8%
10%
12%

2. Launamaður getur að hámarki greitt sem frádráttarbært lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð:
4%
6%
8%

3. Framlag atvinnurekenda á móti lágmarksiðgjaldi launþega er:
6%
8%
Misjafnt eftir kjarasamningum.

4. Er heimilt að endurgreiða útlendingum innan EES iðgjöld í lífeyrissjóð?
Nei.
Já, ef viðurkenndur lífeyrissjóður innan EES tekur við þeim.
Já, án takmarkana.

5. Fullur örorkulífeyrir úr lífeyrissjóði er áætlaður um:
80% af launum.
Álíka hár og áætlaður ellilífeyrir ef miðað er við að greitt sé til 65 ára aldurs.
1,5% af launum margfaldað með fjölda ára sem greitt hefur verið í lífeyrissjóð, þ.e. örorkulífeyrir sem hlutfall af launum fer hækkandi með aldri.

6. Viðbótarlífeyrissparnað má byrja að taka út:
Við 60 ára aldur
Við 67 ára aldur
Á sama tíma og greiðslur hefjast úr samtryggingarsjóði.

7. Hvenær á launagreiðandi eða sjálfstætt starfandi atvinnurekandi að greiða lífeyrissjóðsiðgjöld?
Gjalddagi er 10. dag mánaðar eftir launatímabil og eindagi síðasta virka dag mánaðar eftir launatímabil.
Á sama tíma og staðgreiðslan er greidd, 15. dag mánaðar eftir launatímabil.
10 dögum eftir útborgunardag.

8. Hvað felst í lágmarkstryggingavernd lífeyrissjóða?
Ellilífeyrir til æviloka. Örorku- og barnalífeyrir við starfsorkumissi og maka- og barnalífeyrir við andlát.
Ellilífeyrir til æviloka.
Ellilífeyrir til æviloka. Örorkulífeyrir við starfsorkumissi og líftrygging við fráfall.

9. Hvenær og hvað lengi greiða lífeyrissjóðir örorkulífeyri?
Fram að ellilífeyrisaldri.
Til æviloka.
Meðan starfsorkumissir og tekjutap varir þar til ellilífeyrir tekur við.

10. Hver er munurinn á sjóðsöfnun og gegnumstreymiskerfum?
Í sjóðsöfnun greiða sjóðfélagar iðgjald sem ávaxtað er þar til þeir fara á lífeyri en í gegnumstreymiskerfum er iðgjald sjóðfélaga notað til að greiða lífeyri þeirra sem þegar eru komnir á lífeyrisaldur.
Í sjóðsöfnun eru iðgjöld hvers sjóðfélaga hans eign og eru ávöxtuð með iðgjöldum annarra sjóðfélaga. Í gegnumstreymiskerfi safna sjóðfélagar í sameiginlegan sjóð sem notaður er til að greiða út elli- og örorkulífeyri til allra sjóðfélaga sem þurfa á því að halda.
Enginn.

11. Byggja íslensku lífeyrissjóðirnir á sjóðsöfnun eða gegnumstreymiskerfi?
Sjóðsöfnun.
Gegnumstreymiskerfi.
Hvoru tveggja.

12. Mættu lífeyrissjóðir eiga og reka hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða?
Já. Slíkar fjárfestingar eru heimilar skv. lögum.
Já, að fengnu samþykki ársfundar sjóðs.
Nei. Slíkar fjárfestingar eru bannaðar skv. lögum.

13. Hvaða ávöxtunarkrafa er gerð til lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði í tryggingafræðilegu uppgjöri?
2% umfram launavísitölu.
3,5% umfram vísitölu neysluverðs.
5% umfram vístölu neysluverðs.

14. Greiða lífeyrissjóðir styrki vegna sjúkraþjálfunar?
Já, til allra sjóðfélaga.
Já, til örorkulífeyrisþega hjá viðkomandi sjóði.
Nei.



Landssamtök lífeyrissjóða • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563-6450 • Fax: 563-6401 • ll@ll.iswww.ll.is