Nýir sjóðfélagar
Réttindi í lífeyrissjóði eru afar mikilvæg. Í þessum kafla eru spurningar og svör fyrir þá sem eru hefja störf á vinnumarkaði og byrja að greiða í lífeyrissjóð.
Samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð.
Tilgangur lífeyrissjóðanna er að tryggja sjóðfélögum sínum ellilífeyri til æviloka auk þess að verja þá og fjölskyldur þeirra fyrir tekjumissi vegna örorku (örorku- og barnalífeyrir) og andláts (maka- og barnalífeyrir).
Hér getur þú fræðst um þessi réttindi og lesið almennar ráðleggingar Landssamtaka lífeyrissjóða til nýrra sjóðfélaga. Þeim tíma er vel varið.