Greiðslur í lífeyrissjóði
Réttindi
Ellilífeyrir
Örorkulífeyrir
Fjölskyldan
Skattamál
Viðbótarlífeyrissparnaður







 
Spurt og svarað

Í þessum kafla er að finna mikilvægar spurningar og svör um lífeyrissjóðina og lífeyrisréttindi.

Efnið byggir á upplýsingariti Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál, Lífeyrissjóðurinn þinn, sem er ætlað að upplýsa sjóðfélaga lífeyrissjóða um réttindi þeirra og landsmenn almennt um lífeyrismál. Smelltu hér til að sækja bæklinginn á pdf formi.

Ef þú þarft viðbótarupplýsingar getur þú sent inn fyrirspurn til Landssamtaka lífeyrissjóða og þér verður sent til baka viðhlítandi svar við fyrsta tækifæri.


  1. Hvers vegna þarf ég að borga skatta af lífeyrisgreiðslum?
  2. Hvaða skattareglur gilda um viðbótarlífeyrissparnað?



Hvers vegna þarf ég að borga skatta af lífeyrisgreiðslum?
  • Iðgjöldin sem þú greiðir í lífeyrissjóð eru ekki skattlögð þar sem þau eru dregin frá skattskyldum tekjum áður en tekjuskattur er reiknaður. Launagreiðandinn getur dregið framlag sitt frá skatti.
  • Þessar tekjur hafa því ekki verið skattlagðar þegar kemur að töku lífeyris.
  • Lífeyrir er þess vegna skattlagður eins og hverjar aðrar vinnutekjur en lífeyrisþegar geta nýtt sér persónuafslátt til að lækka skattana.
  • Þar sem lífeyrisiðgjöld eru greidd óskattlögð í lífeyrissjóð er komið í veg fyrir tvísköttun lífeyris.
  • Réttindi hjá lífeyrissjóðum eru undanþegin fjármagnstekjuskatti af vaxtatekjum.




Landssamtök lífeyrissjóða • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563-6450 • Fax: 563-6401 • ll@ll.iswww.ll.is