Forsíða > Spurt og svarað > Fjölskyldan




Greiðslur í lífeyrissjóði
Réttindi
Ellilífeyrir
Örorkulífeyrir
Fjölskyldan
Skattamál
Viðbótarlífeyrissparnaður







 
Spurt og svarað

Í þessum kafla er að finna mikilvægar spurningar og svör um lífeyrissjóðina og lífeyrisréttindi.

Efnið byggir á upplýsingariti Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál, Lífeyrissjóðurinn þinn, sem er ætlað að upplýsa sjóðfélaga lífeyrissjóða um réttindi þeirra og landsmenn almennt um lífeyrismál. Smelltu hér til að sækja bæklinginn á pdf formi.

Ef þú þarft viðbótarupplýsingar getur þú sent inn fyrirspurn til Landssamtaka lífeyrissjóða og þér verður sent til baka viðhlítandi svar við fyrsta tækifæri.


  1. Ég er heimavinnandi og hef aldrei greitt í lífeyrissjóð. Á ég rétt á hluta af lífeyrisréttindum maka míns?
  2. Maki minn hefur meiri tekjur en ég. Getum við jafnað lífeyrisréttindi okkar?
  3. Ef maki minn fellur frá, fæ ég þá lífeyri úr lífeyrissjóði hans/hennar?
  4. Er upphæðin mismunandi eftir fjölskyldustærð?
  5. Hversu lengi fæ ég makalífeyri?
  6. Skiptir máli hvort maki minn er enn að vinna eða kominn á eftirlaun eða örorkulífeyri við andlát?
  7. Fá börnin okkar lífeyri ef annað okkar fellur frá?



Ég er heimavinnandi og hef aldrei greitt í lífeyrissjóð. Á ég rétt á hluta af lífeyrisréttindum maka míns?
  • Maka þínum er heimilt að framselja til þín allt að helmingi ellilífeyrissjóðsréttinda sinna.
  • Við andlát sjóðfélaga fær eftirlifandi maki svokallaðan makalífeyri, hvort sem réttindum hefur verið skipt eða ekki. 
  • Óskertur makalífeyrir er greiddur í að minnsta kosti tvö ár.
  • Ef eftirlifandi maki er með börn yngri en 18 ára á framfæri sínu er makalífeyririnn óskertur þar til yngsta barnið hefur náð 18 ára aldri. Hjá sumum lífeyrissjóðum er makalífeyrir greiddur lengur.
  • Ef eftirlifandi maki er öryrki við andlát sjóðfélaga og yngri en 67 ára er óskertur makalífeyrir greiddur á meðan örorkan varir.
  • Makalífeyrir fellur niður ef makinn gengur í hjónaband á ný eða stofnar til sambúðar.




Landssamtök lífeyrissjóða • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563-6450 • Fax: 563-6401 • ll@ll.iswww.ll.is