Forsíða > Spurt og svarað > Örorkulífeyrir




Greiðslur í lífeyrissjóði
Réttindi
Ellilífeyrir
Örorkulífeyrir
Fjölskyldan
Skattamál
Viðbótarlífeyrissparnaður







 
Spurt og svarað

Í þessum kafla er að finna mikilvægar spurningar og svör um lífeyrissjóðina og lífeyrisréttindi.

Efnið byggir á upplýsingariti Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál, Lífeyrissjóðurinn þinn, sem er ætlað að upplýsa sjóðfélaga lífeyrissjóða um réttindi þeirra og landsmenn almennt um lífeyrismál. Smelltu hér til að sækja bæklinginn á pdf formi.

Ef þú þarft viðbótarupplýsingar getur þú sent inn fyrirspurn til Landssamtaka lífeyrissjóða og þér verður sent til baka viðhlítandi svar við fyrsta tækifæri.


  1. Á ég rétt á bótum ef ég slasast eða veikist alvarlega?
  2. Hvað get ég fengið mikinn örorkulífeyri ef ég get ekki unnið vegna veikinda?
  3. Fá börnin okkar lífeyri ef við veikjumst alvarlega eða verðum fyrir slysi?
  4. Fæ ég jafnframt örorkulífeyri úr almannatryggingakerfinu?
  5. Hversu lengi er örorkulífeyrir greiddur úr lífeyrissjóðum?
  6. Get ég fengið örorkulífeyri úr lífeyrissjóðnum mínum ef ég þarf að vera frá vinnu vegna veikinda í fjölskyldunni?
  7. Kemur lífeyrissjóðurinn til hjálpar ef ég verð atvinnulaus?
  8. Fæ ég örorkulífeyri greiddan úr lífeyrissjóði ef ég verð ekki fyrir tekjuskerðingu af völdum örorkunnar?



Á ég rétt á bótum ef ég slasast eða veikist alvarlega?
  • Ef þú hefur orðið fyrir slysi eða sjúkdómi sem dregur úr starfsgetu þinni og veldur tekjuskerðingu getur þú átt rétt á bótum.
  • Skilyrðin eru þau að starfið hafi veitt þér aðild að viðkomandi lífeyrissjóði og að þú hafir sannanlega orðið fyrir tekjumissi.
  • Miðað er við að starfsorkumissir sé a.m.k. 50% (hjá sumum sjóðum 40%) og að greitt hafi verið í lífeyrissjóð í tvö ár eða lengur.
  • Eftir þrjú ár er kannað hvort sjóðfélaginn sé vinnufær til allra almennra starfa, þótt hann geti ekki unnið það starf sem hann stundaði fyrir veikindin eða slysið. Bætur falla niður, ef hann er fær um að vinna öll almenn störf.
  • Lífeyrissjóður getur gert þá kröfu til sjóðfélaga að hann fari í endurhæfingu og á það bæði við þegar sótt er um örorkulífeyri og við endurmat á starfsgetu hans.




Landssamtök lífeyrissjóða • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563-6450 • Fax: 563-6401 • ll@ll.iswww.ll.is