Forsíða > Spurt og svarað > Ellilífeyrir




Greiðslur í lífeyrissjóði
Réttindi
Ellilífeyrir
Örorkulífeyrir
Fjölskyldan
Skattamál
Viðbótarlífeyrissparnaður







 
Spurt og svarað

Í þessum kafla er að finna mikilvægar spurningar og svör um lífeyrissjóðina og lífeyrisréttindi.

Efnið byggir á upplýsingariti Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál, Lífeyrissjóðurinn þinn, sem er ætlað að upplýsa sjóðfélaga lífeyrissjóða um réttindi þeirra og landsmenn almennt um lífeyrismál. Smelltu hér til að sækja bæklinginn á pdf formi.

Ef þú þarft viðbótarupplýsingar getur þú sent inn fyrirspurn til Landssamtaka lífeyrissjóða og þér verður sent til baka viðhlítandi svar við fyrsta tækifæri.


  1. Fæ ég ellilífeyri úr almannatryggingakerfinu þótt ég hafi aflað mér réttinda í lífeyrissjóðum?
  2. Hver er munurinn á ellilífeyri úr almannatryggingakerfinu og lífeyrissjóðum?
  3. Þarf ég að sækja um ellilífeyri?
  4. Hvenær get ég byrjað að taka út ellilífeyri úr lífeyrissjóði?
  5. Hafa fjármagnstekjur áhrif á upphæð ellilífeyris úr lífeyrissjóðum?
  6. Hafa tekjur maka áhrif á upphæð ellilífeyris úr lífeyrissjóðum?
  7. Er hætta á því að lífeyrissjóðurinn minn hafi skerta greiðslugetu þegar að því kemur að ég ætti að fá greiddan ellilífeyri?
  8. Er hægt að skipta ellilífeyrissréttindum milli hjóna?



Fæ ég ellilífeyri úr almannatryggingakerfinu þótt ég hafi aflað mér réttinda í lífeyrissjóðum?

 

  • Greiðslur frá lífeyrissjóðum geta einnig skert  grunnlífeyri almannatrygginga.
  • Ef þú átt lítil lífeyrisréttindi hjá lífeyrissjóðum gætir þú átt rétt á tekjutryggingu og öðrum bótum frá Tryggingastofnun ríkisins.
  • Samspil almannatryggingakerfisins og lífeyrissjóðanna getur verið talsvert flókið, þar sem lífeyrisgreiðslur, tekjur maka og fjármagnstekjur geta skert bætur almannatrygginga.
  • Nánari upplýsingar um lífeyris- og bótar;ttindi almannatryggingakerfisins má finna á vef Tryggingastofnunar ríkisins, www.tr.is .

 





Landssamtök lífeyrissjóða • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563-6450 • Fax: 563-6401 • ll@ll.iswww.ll.is