|
Get ég fengið endurgreidd innborguð iðgjöld ef ég hætti í sjóðnum? - Nei, það er ekki heimilt að endurgreiða íslenskum ríkisborgurum iðgjöld, hvorki í samtryggingarsjóðum, né af viðbótarlífeyrissparnaði.
- Þegar útlendingar flytja úr landi er heimilt að greiða þeim út iðgjöld sín, en það á einkum við ríkisborgara landa utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
- Hins vegar er í ákveðnum tilvikum hægt að flytja réttindin milli sjóða hér á landi, sérstaklega þegar um er að ræða litlar upphæðir. Samkomulag er á milli lífeyrissjóðanna um það hvernig flutningur fer fram, en hann á sér ekki stað fyrr en farið er að greiða lífeyri.
|