Forsíða > Spurt og svarað > Greiðslur í lífeyrissjóði




Greiðslur í lífeyrissjóði
Réttindi
Ellilífeyrir
Örorkulífeyrir
Fjölskyldan
Skattamál
Viðbótarlífeyrissparnaður







 
Spurt og svarað

Í þessum kafla er að finna mikilvægar spurningar og svör um lífeyrissjóðina og lífeyrisréttindi.

Efnið byggir á upplýsingariti Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál, Lífeyrissjóðurinn þinn, sem er ætlað að upplýsa sjóðfélaga lífeyrissjóða um réttindi þeirra og landsmenn almennt um lífeyrismál. Smelltu hér til að sækja bæklinginn á pdf formi.

Ef þú þarft viðbótarupplýsingar getur þú sent inn fyrirspurn til Landssamtaka lífeyrissjóða og þér verður sent til baka viðhlítandi svar við fyrsta tækifæri.


  1. Er ég skyldug/ur til að greiða í lífeyrissjóð?
  2. Hver er ávinningurinn af því að greiða í lífeyrissjóð?
  3. Get ég ráðið í hvaða lífeyrissjóð ég greiði?
  4. Hvenær þarf ég að vera búinn að greiða í lífeyrissjóð ef ég vinn sjálfstætt?
  5. Hver hefur eftirlit með lífeyrissjóðsgreiðslum?
  6. Get ég fengið endurgreidd innborguð iðgjöld ef ég hætti í sjóðnum?
  7. Ég man ekki í hvaða lifeyrissjóði ég hef greitt um ævina. Er hætta á að einhverjar greiðslur týnist eða fyrnist?
  8. Þurfa erlendir ríkisborgarar að greiða iðgjöld í lífeyrissjóði?
  9. Hvað á ég að greiða í lífeyrissjóð?
  10. Hvað verður um iðgjöld erlendra ríkisborgara þegar þeir flytja heim aftur?



Hver hefur eftirlit með lífeyrissjóðsgreiðslum?
  • Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að lífeyrisiðgjald sé greitt með því að bera upplýsingar frá lífeyrissjóðunum um innborguð iðgjöld saman við upplýsingar um greiðslur til lífeyrissjóða sem fram koma í skattframtali launamanna og sjálfstæðra atvinnurekenda.
  • Lífeyrissjóðirnir senda hverjum sjóðfélaga yfirlit yfir þær iðgjaldagreiðslur sem hafa borist vegna hans. Heimilt er að skila yfirlitum í rafrænu formi, óski sjóðfélagi eftir því. Sjóðfélagar eiga að fylgjast með því að tilskilin iðgjöld séu greidd af launum sínum.
  • Til þess að iðgjöld launamanns njóti ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa við gjaldþrot verða launamenn að ganga úr skugga um skil launagreiðandans til lífeyrissjóðsins innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins.
  • Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er mikilvægt að launþeginn tilkynni sjóðnum það með framlagningu launaseðla innan 60 daga. Ef engin athugasemd berst frá launamanni, er lífeyrisjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum sem grundvallast á iðgjöldum sem fást greidd.




Landssamtök lífeyrissjóða • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563-6450 • Fax: 563-6401 • ll@ll.iswww.ll.is