Forsíða > Spurt og svarað > Greiðslur í lífeyrissjóði




Greiðslur í lífeyrissjóði
Réttindi
Ellilífeyrir
Örorkulífeyrir
Fjölskyldan
Skattamál
Viðbótarlífeyrissparnaður







 
Spurt og svarað

Í þessum kafla er að finna mikilvægar spurningar og svör um lífeyrissjóðina og lífeyrisréttindi.

Efnið byggir á upplýsingariti Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál, Lífeyrissjóðurinn þinn, sem er ætlað að upplýsa sjóðfélaga lífeyrissjóða um réttindi þeirra og landsmenn almennt um lífeyrismál. Smelltu hér til að sækja bæklinginn á pdf formi.

Ef þú þarft viðbótarupplýsingar getur þú sent inn fyrirspurn til Landssamtaka lífeyrissjóða og þér verður sent til baka viðhlítandi svar við fyrsta tækifæri.


  1. Er ég skyldug/ur til að greiða í lífeyrissjóð?
  2. Hver er ávinningurinn af því að greiða í lífeyrissjóð?
  3. Get ég ráðið í hvaða lífeyrissjóð ég greiði?
  4. Hvenær þarf ég að vera búinn að greiða í lífeyrissjóð ef ég vinn sjálfstætt?
  5. Hver hefur eftirlit með lífeyrissjóðsgreiðslum?
  6. Get ég fengið endurgreidd innborguð iðgjöld ef ég hætti í sjóðnum?
  7. Ég man ekki í hvaða lifeyrissjóði ég hef greitt um ævina. Er hætta á að einhverjar greiðslur týnist eða fyrnist?
  8. Þurfa erlendir ríkisborgarar að greiða iðgjöld í lífeyrissjóði?
  9. Hvað á ég að greiða í lífeyrissjóð?
  10. Hvað verður um iðgjöld erlendra ríkisborgara þegar þeir flytja heim aftur?



Get ég ráðið í hvaða lífeyrissjóð ég greiði?
  • Aðild að lífeyrissjóði fer eftir þeim kjarasamningi sem ákvarðar lágmarkskjör í hlutaðeigandi starfsgrein, eða sérlögum ef við á.
  • Ef kjarasamningur þinn tekur ekki til viðkomandi starfssviðs eða ef ráðningarsamningur þinn er ekki byggður á kjarasamningi getur þú valið þér lífeyrissjóð eftir því sem reglur einstakra sjóða leyfa.
  • Reglur einstakra lífeyrissjóða leyfa ekki aðild hvers sem er. Þannig er því til dæmis varið með lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.




Landssamtök lífeyrissjóða • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563-6450 • Fax: 563-6401 • ll@ll.iswww.ll.is